Opinn fundur mánudaginn 2. júní kl. 12:15-13:15 í sal Þjóðminjasafnsins
Örugg framtíð – Í faðmi landsins
Monique Barbut, framkvæmdastýra Eyðimerkursamnings Sameinuðu þjóðanna, mun færa rök fyrir því að landgræðslumál og betri stjórn landnýtingar á heimsvísu geti hjálpað við aðlögun að loftslagsbreytingum og þurrkum; dregið úr fólksflótta og átökum vegna rýrnandi náttúruauðlinda og tryggt sjálfbæra landbúnaðar- og orkuframleiðslu.
Barbut er reyndur franskur diplómat og þjónaði áður sem framkvæmdastýra Global Environment Facility (2006-2012).
Sigurður Ingi Jóhannsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, flytur upphafsávarp.
Fundarstjóri: Guðrún Pétursdóttir, forstöðumaður Stofnunar Sæmundar fróða.
Fundurinn fer fram á ensku. Allir velkomnir.
Að fundinum standa: Utanríkisráðuneytið, Umhverfis- og auðlindaráðuneytið, Stofnun Sæmundar fróða, Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands, Landbúnaðarháskóli Íslands, Landgræðsla ríkisins og Landgræðsluskóli Háskóla Sameinuðu þjóðanna