Fimmtudaginn 5. júní kl. 13:00-16:00 í Odda 101
Ísland, Evrópusambandið og loftslagsbreytingar
Opinn fundur á vegum Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands og Evrópustofu í samstarfi við Landvernd og Náttúruverndarsamtök Íslands.
Á þessu málþingi verður fjallað um stefnu Evrópusambandsins í loftslagsmálum og hvernig hún hefur áhrif á Íslandi í gegnum EES-samninginn. Er sambandið að standa sig nægilega vel í baráttunni gegn hlýnun jarðar? Á Íslandi er losun gróðurhúsalofttegunda á hvern íbúa með því mesta sem gerist í heiminum. Hvað eru íslensk stjórnvöld að gera til að draga úr þessari losun? Hvaða tækifæri eru til nýsköpunar í viðskiptageiranum á Íslandi? Þarf að breyta viðhorfum hérlendis?
Opnunarávarp
Pia Hansson, forstöðumaður Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands
Stefna Evrópusambandsins í loftslagsmálum og EES-samningurinn
Samuel Flückiger, sérfræðingur í umhverfismálum hjá EFTA
Gagnrýnin umfjöllun um stefnu Evrópusambandsins í loftslags- og orkumálum
Wendel Trio, formaður Climate Action Network Europe
Stefna og aðgerðir Íslands í loftslagsmálum
Hugi Ólafsson, skrifstofustjóri í umhverfis- og auðlindaráðuneytinu
Tækifæri til nýsköpunar í viðskiptageiranum á Íslandi
Bryndís Skúladóttir, forstöðumaður umhverfismála hjá Samtökum iðnaðarins
Gerum minna – hreinskilið viðhorf til höfuðorsaka nútímaloftslagsbreytinga
Finnur Guðmundarson Olguson, einn umsjónarmanna grugg.is, vefrits um umhverfismál
Samantekt
Árni Finnsson, formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands
Fundarstjóri: Guðmundur Ingi Guðbrandsson, framkvæmdastjóri Landverndar
Boðið verður upp á kaffiveitingar.
Málþingið fer fram á ensku. Allir velkomnir.