OPIÐ MÁLÞING Á VEGUM ALÞJÓÐAMÁLASTOFNUNAR HÁSKÓLA ÍSLANDS
FÖSTUDAGINN 10. OKTÓBER Í LÖGBERGI 101 KL. 12:00-13:30
Skref til friðar
Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands tekur þátt í norrænu verkefni sem leggur áherslu á uppbyggingu friðar á Norðurlöndunum. Nú hefur friður ríkt milli landanna í 200 ár, en hvernig er unnið að því að efla friðarmenningu og viðhalda friðsamlegum samskiptum? Í erindunum er fjallað um hagnýt atriði sem hægt er að horfa til.
Dagskrá:
Opnunarávarp: Silja Bára Ómarsdóttir, aðjúnkt við Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands
Hvernig á að hjálpa öðrum að leysa átök
Ida Persson, sáttamiðlari, Sáttamiðlunarstofu Álandseyja
Gagnrýnin kennslufræði: Mögulegt tæki til að stuðla að réttlæti og friði
Sue Gollifer, doktorsnemi við Menntavísindasvið Háskóla Íslands
Að búa til betri (heims)borgara
Barbara Sivertsen, fyrrverandi forstöðumaður Norska friðarráðsins
Stuðlað að friðsamlegri samskiptum á Kostaríka og Írlandi: Verkefnin „Bepeace“ og „A Safe Place“
Birger Norup, einn af stofnendum Friðarbandalags Danmerkur
Fundarstjóri: Susann Simolin, upplýsingafulltrúi Friðarstofnunar Álandseyja
Málþingið fer fram á ensku og er opið öllum.
Alþjóðamálastofnun á Facebook: www.facebook.com/althjodamalastofnun