Opinn fundur á degi Sameinuðu þjóðanna, föstudaginn 24. október, kl. 12-13 – Björtuloft, Hörpu, 7. hæð.
Fundurinn er haldinn á vegum Félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi, Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands og utanríkisráðuneytisins.
Hádegisspjall með Gunnari Braga Sveinssyni, utanríkisráðherra
Helstu málefni á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna 2014
Gunnar Bragi mun fjalla um þátttöku sína á 69. allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í lok september og áherslur Íslands á vettvangi SÞ.
Þetta er einstakt tækifæri til þess að spjalla við utanríkisráðherra um þátttöku Íslands í störfum Sameinuðu þjóðanna.
Í lok fundar mun ráðherra undirrita samstarfssamninga við Landsnefnd UNICEF á Íslandi og Miðstöð Sameinuðu þjóðanna.
Fundarstjóri: Pia Hansson, forstöðumaður Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands.
Léttar veitingar í boði. Allir velkomnir.
Vinsamlegast skráið mætingu á felag@un.is fyrir hádegi á fimmtudag.