Opinn fundur á vegum Rannsóknaseturs um norðurslóðir við Háskóla Íslands föstudaginn 14. október kl. 12:00-13:00 í Odda 202
Fæðuöryggi er eitt mikilvægasta viðfangsefnið sem íbúar á norðurslóðum þurfa að takast á við, enda hefur komið í ljós að þegar fæðuöryggi er ekki tryggt leiðir það til félagslegra vandamála og ójöfnuðar. Í þessum fyrirlestri verður fjallað sérstaklega um fæðuöryggi í Nunavut í Kanada, þar sem meirihluti íbúa er af frumbyggjaættum, og tengsl fæðuöryggis við hnattræna þróun og umræðu um réttindi frumbyggja.
Natalia Loukacheva, Rannsóknastjóri á sviði frumbyggjaréttar og -stjórnarhátta við University of Northern British Columbia.
Fundurinn fer fram á ensku og er opinn öllum.