Opinn fundur á vegum Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands í samstarfi við franska og þýska sendiráðið, mánudaginn 22. janúar kl. 12 til 13 í Veröld stofu 008 í Háskóla Íslands
Samband Frakka og Þjóðverja – þungamiðja í uppbyggingu Evrópu
Í tilefni af 55 ára afmæli Élysée-sáttmálans, sem lagði grunninn að samskiptum Þýskalands og Frakklands eftir seinni heimsstyrjöld, munu sendiherrar Þýskalands, Herbert Beck, og Frakklands, Graham Paul, ræða hið einstæða samband ríkjanna tveggja og drifkraft þeirra í uppbyggingu Evrópu.
Élysée-sáttmálinn er oft talinn undirstaða stöðugleika í Evrópu en hann nær til samstarfs ríkjanna tveggja á sviði utanríkis-, varnar- og menntamála.
Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, kynnir sendiherrana og stýrir fundi.
Fundurinn fer fram á ensku. Allir velkomnir.