10. desember, taktu daginn frá!
Í tilefni af 70 ára afmæli Mannréttindayfirlýsingar Sameinuðu þjóðanna standa samræðuvettvangur um mannréttindi og stýrihópur Stjórnarráðsins um mannréttindi að hátíðarfundi í Veröld – húsi Vigdísar, mánudaginn 10. desember frá kl. 09:00 – 11:00.
Mannréttindayfirlýsingin hefur verið og er enn mikilvægt tæki í baráttunni fyrir mannréttindum en hún er undistaða helstu alþjóðasamninga um mannréttindi. Lögin nægja þó ekki ein og sér. Til þess að sækja rétt sinn og virða rétt annarra er mikilvægt að fólk viti hvað felst í mannréttindum en þekking á ákvæðum Mannréttindayfirlýsingarinnar er forsenda réttláts samfélags.
Komdu og taktu þátt í umræðunni með okkur! Mannréttindayfirlýsingin tilheyrir okkur öllum og það er mikilvægt að standa vörð um þann áfanga sem náðst hefur og styrkja og halda áfram að stuðla enn frekar að virðingu fyrir mannréttindum.
Dagskrá
9:00 – 9:10 Opnunarávarp, Sigríður Á. Andersen, dómsmálaráðherra
9:10 – 9:30 Mannréttindayfirlýsingin – Undirstaða mannréttindaverndar í heiminum,
Björg Thorarensen, prófessor í lögfræði við Háskóla Íslands
9:30 – 9:35 Hvað getur Ísland lagt af mörkum til að standa vörð um mannréttindi á alþjóðavísu? Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra
9:35 – 10.25 Staða mannréttinda á Íslandi og á alþjóðavettvangi
Pallborðsumræður: Margrét Steinarsdóttir, framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands, Silja Bára Ómarsdóttir, dósent við Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands, Þórlindur Kjartansson, stofnandi i2 og pistlahöfundur hjá Fréttablaðinu, Hanna Katrín Friðriksdóttir, þingkona og Björg Thorarensen, prófessor í lögfræði við Háskóla Íslands.
Umræðustjóri: Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans
10:25 – 10:40 Verðlaunaafhending í smásagnasamkeppni vegna 70 ára afmælis Mannréttindayfirlýsingar Sameinuðu þjóðanna
Michael Mann, sendiherra ESB á Íslandi og Vilborg Davíðsdóttir, varaformaður Rithöfundasambands Íslands, kynna sigurvegara smásagnakeppninnar
10:40 – 10:50 Mikilvægi mannréttinda fyrir komandi kynslóðir
Ritstjórn skuggaskýrslu barna til Barnaréttarnefndar Sameinuðu þjóðanna.
Jökull Ingi Þorvaldsson
Sunneva Björk Birgisdóttir
Einar Hrafn Árnason
10:50 – 11:00 Lokaorð, Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra